|



22. janúar 2010
Síðasta laugardag var frumsýndur nýr Mercedes-Benz E-class hjá Bílaumboðinu ÖSKJU. Góð mæting var á viðburðinn en ríflega 300 manns komu á sýninguna. Á frumsýningunni kynnti Bílaumboðið ASKJA nýja Alþjónustu sem fylgir öllum nýjum E-class. Í því felst að nánast öll þjónusta er innifalin við kaup næstu þrjú árin eða allt að 60.000 km. akstri. 3 ára ábyrgð fylgir bílnum, allar þjónustuskoðanir og smurþjónusta skv. fyrirmælum framleiðanda og allt eðlilegt viðhald t.d. ljósaperur, þurrkublöð, hemlaklossar, hemladiskar, spindlar, stýrisendar. Í tengslum við sýninguna voru tvær nýjar bifreiðar af E-class gerð verið seldar.
Bílaumboðið ASKJA býður ríflegan afslátt af öllum pöntunum sem staðfestar verða fyrir lok febrúar 2010.
 |